Leiðbeiningar eftir tannúrdrátt

Verkir

Nota verkjatöflur eftir þörfum eftir aðgerð verkjalyf eins og íbúfen/Voltaren og samhliða því er gott að taka paracetamol eins og Paratabs eða Panódíl.


Munnhirða

Passa að skola munnin sem minnst fyrstu dagana eftir aðgerð. Ennig má ekki nota sogrör fyrstu dagana eftir aðgerð. Sogið getur leyst upp blóðköggulinn sem hægir á græðsluferlinu. Gott er að skola munninn eftir 2 daga og fram að saumatöku með sótthreinsandi munnskoli sem inniheldur klórhexidín eins og corsodyl. Það er í lagi að bursta tennurnar en passið að bursta ekki sárið.


Fæða

Passa að leyfa deyfingunni að fara áður en byrjað er að borða. Best er að borða mjúkan mat fyrstu 2 dagana eftir aðgerð. Forðist heita drykki og mat fyrstu tvo sólarhringanna. Gott er að reyna að borða í gagnstæðri hlið við úrdráttarsvæðið.


Bólga og blæðing

Bólga og smá blæðing er oft fylgikvilli aðgerðanna en ef mikil bólga myndast hafið þá samband við okkur á tannlæknastofunni.  Bólgan getur komið eftir 24 klst og nær hámarki á 2-3 dögum. Bólgan getur verið til staðar í 7-10 daga. Mjög gott er að nota kaldra bakstra í 20 mín nokkrum sinnum yfir daginn fyrstu tvo sólarhringanna.


Sýklalyf

Ef sýklalyfi hefur verið ávísað er nauðsynlegt að klára skammtinn. Ef eh aukaverkanir koma samhliða sýklalyfjainntökunni þá hafið samband við okkur á tannlæknastofunni.


Hreyfing

Forðist líkamlega áreynslu fyrstu 2 sólarhringana eftir aðgerð.


Græðsla

Andremma er algeng og hverfur þegar græðslan hefst. Eftir 2-3 daga getur komið hvítur hugsanlega harður vefur á skurðsvæði, það er dæmi um venjulega græðslu. Hefja má smíði tanngerva eftir um það bil 10-12 vikur. Stundum þarf að bíða í lengri tíma allt að 6 mánuði.


Reykingar

Forðist reykingar fyrstu daga eftir aðgerð þar sem reykingar geta leyst upp blóðköggulinn og hægt á græðslunni.


Leitið til okkar ef að þú

  • Færð hita, ógleði eða uppköst
  • Ef verkur, bólgan eða blæðingin hættir ekki
  • Verkurinn versnar með tímanum og lagast ekki


Bókaðu tíma hjá okkur og njóttu heilbrigðara bros

Fylltu út nauðsynlegar upplýsingar og við svörum þér við fyrsta tækifæri

Bóka tíma

Fyrirspurn þín er móttekin
Eitthvað er ekki rétt!